Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2019 skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2020. Upplýsingum þessum skal skilað á tölvutæku formi og samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra, á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus.
- Launa- og verktakaupplýsingar o.fl. (RSK 2.01).
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.).Skilaform: Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
- Bifreiðahlunnindaupplýsingar (RSK 2.035).
Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota.Skilaform: Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
- Hlutafjárupplýsingar (RSK 2.045).
Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sundurliða skal upplýsingarnar á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) allra rétthafa.Skilaform: Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
- Stofnsjóðsupplýsingar (RSK 2.065).
Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Skila skal m.a. upplýsingum um eign eigenda í félaginu í árslok og úttektir af höfuðstól á árinu. Sundurliða skal upplýsingarnar á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) allra rétthafa.Skilaform: - Rafrænt
- Stofnsjóðsupplýsingum er hægt að skila rafrænt í Gagnaskilakerfi RSK eða sem textaskrá. Sjá nánar um Gagnaskil.
- Sjá nánar eyðublað RSK 2.065 (pdf) og RSK 2.06 (pdf).
Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar. Skal skilað á rafrænu formi.
- Rafrænt
- Launaframtal (RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05).
Allir sem greiða laun eiga að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofn til tryggingagjalds) rafrænt sem hluta af almennum framtalsskilum. Hjá einstaklingum með rekstur er launaframtalið hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af skattframtali óskattskyldra lögaðila RSK 1.06 sem hægt er að skila á þjónustusíðu á skattur.is.Skilaform: - Rafrænt, á þjónustusíðu á skattur.is, sbr. ofanritað.
- Sjá nánar orðsendingu til launagreiðanda nr. 3/2019.
Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - Launaframtali er skilað rafrænt og fylgir það skilafresti vegna framtala, þ.e. síðasti skiladagur er 13. mars hjá einstaklingum og 31. maí hjá öllum lögaðilum.
- Viðskipti með hlutabréf/afleiður.
Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila.Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar framtalsgögn.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Innstæður o.fl.
Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar eða hafa milligöngu um ávöxtun og/eða vörslu fjármuna. Sama á við um þá sem taka við eða hafa milligöngu um hverskonar ráðstöfun fjármuna, s.s. söfnunartrygginga og rafeyriskorta. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga, þ.e. innstæður og heildarveltu ársins ásamt vaxtatekjum, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og afdrátt staðgreiðslu og stöðu þessara krafna í árslok.Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar framtalsgögn.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Viðskipti með verðbréf, önnur en hlutabréf og afleiður, sbr. 6. tölul. að framan.
Skila skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um öll verðbréf, s.s. kröfur og hlutdeildarskírteini. Tilgreina skal vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
Flokka skal fjármálagerninga í almenna og sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini). Vaxtatekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2019, þarf að sundurliða eftir því sem þær hafa áunnist.Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar framtalsgögn.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán).
Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur, greiðslukortafyrirtæki o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um kröfur sem hafa verið afskrifaðar að hluta eða öllu leyti.Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar framtalsgögn.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Takmörkuð skattskylda – greiðsluyfirlit (RSK 2.025).
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.Skilaform: - Rafrænt, Hægt er að skila þessu eyðublaði með skattframtali í rafrænum framtalsskilum.
- Sjá nánar eyðublað RSK 2.025 (pdf).
Tengiliður RSK: - Elín Margrét Þráinsdóttir, t-póstur: elin.thrainsdottir@rsk.is, sími 442 1107.
Skiladagur: - Sami skiladagur og á skattframtali, ef skilað er með því.
- Greiðsluupplýsingar – leiga eða afnot (RSK 2.02).
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan. Sama á við um þá sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu, bæði til skamms og langs tíma, s.s. leigumiðlarar, bókunarþjónustufyrirtæki og umboðsmenn slíkra aðila.Skilaform: - Rafrænt
- Greiðsluupplýsingar fylgja skattframtali á vefnum og er skilað með því sé það notað.
- Einnig má senda greiðsluupplýsingar sem launaupplýsingar (sjá hér að ofan). Þá er notaður reitur 65 í launaupplýsingum. Launaupplýsingum er hægt að skila; beint úr launakerfum, með innlestri á textaskrá í Gagnaskilakerfinu (sjá Gagnaskil) eða með skráningu í sama kerfi.
- Sjá nánar eyðublað RSK 2.02 (pdf).
Tengiliður RSK: - Tæknisvið RSK, t-póstur: gagnaskil@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar ef skilað er á rafrænu formi sem launaupplýsingum.
- Sami skiladagur og skattframtal ef skilað er með því.
- Rafrænt
- Hlutabréfakaup skv. staðfestri kaupréttaráætlun (RSK 2.085).
Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttarsamninga.Skilaform: - Pappír, sjá RSK 2.085 (pdf).
Tengiliður RSK: - Jón Arnar Árnason, t-póstur: jonarnar@rsk.is, sími 442 1000.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur).
Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003.Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar gagnaskil.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
- Fjármagnstekjur.
Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti) skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur sundurliðað á móttakendur og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtuaðila, t.d. lögmannsstofur, óháð því hvort veitt hefur verið undanþága frá afdrætti staðgreiðslu við innheimtu á vaxtatekjum einstaklinga. Þessum upplýsingum er eingöngu hægt að skila rafrænt (sjá www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/gagnaskil-vefthjonusta/).Skilaform: - Rafrænt, sjá nánar gagnaskil.
Tengiliður RSK: - Friðjón Bjarnason, t-póstur: fridjon.bjarnason@rsk.is, sími 442 1244.
Skiladagur: - 20. janúar.
Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið gagnaskil@rsk.is.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 18. desember 2019
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri