Endurskoðun VSK er nýtt endurskoðunarfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og tók til starfa í apríl 2019. Fyrirtækið er staðsett að Stórhöfða 33 og byggir á góðum grunni eftir sameiningu reksturs Jóns Þ. Hilmarssonar endurskoðanda og Bókhaldsþjónustu Nönnu undir nafninu Endurskoðun VSK ehf.
Eigendur stofunnar eru endurskoðendurnir Jón Þ. Hilmarsson, Svavar Stefánsson, auk Nönnu Sigurðardóttur bókara og Þórunnar Elsu Bjarnadóttur viðurkennds bókara sem jafnframt er framkvæmdarstjóri félagsins.