Menu Close

Eyðublöð – tilkynningar

Áður en starfsemi hefst þarf að tilkynna um hana á þar til gerðum eyðublöðum. Þeir sem stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi þurfa að tilkynna um hana og þeir sem greiða laun eða reikna sér endurgjald þurfa að tilkynna um það. Sameiginleg tilkynning er fyrir virðisaukaskattsskrá og launagreiðendaskrá staðgreiðslu, RSK 5.02. Afskráning af virðisaukaskattsskrá og af launagreiðendaskrá er einnig gerð á sama eyðublaði, RSK 5.04.

Þeir sem skyldir eru til að halda eftir og skila staðgreiðslu skatts af vaxtatekjum þurfa að tilkynna það á eyðublaðinu RSK 5.30 og þeir sem eru skattskyldir til fjársýsluskatts eiga að tilkynna það á eyðublaðinu RSK 5.07. 

Stofnskrá

RSK 5.02Tilkynning til skattyfirvalda, til launagreiðendaskrár staðgreiðslu og/eða virðisaukaskattsskrár. (Leiðbeiningar)Útfyllanlegt
RSK 5.04Tilkynning um afskráningu af launagreiðendaskrá staðgreiðslu og/eða virðisaukaskattsskrá.Útfyllanlegt
RSK 5.07Fjársýsluskattur – Tilkynning um skattskylda starfsemi.Útfyllanlegt
RSK 5.30Tilkynning til ríkisskattstjóra um skilaskyldu á staðgreiðslu af vaxtatekjum.